07.07.2011 15:31
Púki 2011
Helgina 22-24 júlí n.k höldum við okkar árlega vinnuhjúa og vinamót í Grandavör.
Dagskráin verður með svipuðu sniði og undanfarin ár.
Ef veður leyfir verður farið í fjöruna á hertrukknum og við getum reynt að veiða háfa með sjóstöng.
Kveikt verður í grillinu að venju kl 19;00 á Laugardeginum .
Kvöldvakan verður síðan haldin í nýuppgerðu fjósinu í Hallgeirsey. Þar verður Jón bóndi með saxafóninn og býður gömlum vinnumönnum að taka með sér lagið.
Í tilefni af því að það eru 1000 ár síðan" Njálsbrenna "var þá kveikjum við varðeld ef veðurguðirnir verða okkur hliðhollir.
Allir velkomnir og slagorð hátíðarinnar er " Maður er manns gaman ".
Skrifað af Ástdís
Flettingar í dag: 100
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 2440
Gestir í gær: 58
Samtals flettingar: 1067509
Samtals gestir: 73670
Tölur uppfærðar: 31.10.2025 03:32:51